Ferðalok

Það eru nú sextán dagar síðan ég var ristur á hol og garnirnar raknar úr mér til þess að skera og fjarlægja aumingjalegt útskot frá botnristli sem nefnist botnlangi. Síðan þá hef ég að mestu leyti dinglast hérna „heima“ og verið með fjölskyldunni. Fátt markvert hefur gerst á þessum tíma, ég hef sloppið við hvers kyns sýkingar, allt er að gróa vel saman og ég er að mestu orðinn heill heilsu. Svo virðist sem örið verði aðeins mjó þverrák, hægra megin neðan við nafla.

Ég kem heim eftir tólf daga, 8. mars, og mun væntanlega reyna að stytta mér eitthvað stundir þangað til. Kannski ég fari í eitthvað smáferðalag en það er enn óráðið.

Þetta er síðasta færslan frá mér í Ekvador, þó stutt og vesæl sé. Ég þakka þeim sem hafa fylgst með mér og vonast til að sjá ykkur á Íslandi.

3 svör to “Ferðalok”

  1. mamma segir:

    Svindlari

  2. Hrafnhildur Arna segir:

    Halllllo Eyþór Björnson…….

    Seinasta bloggið………..
    Halló það er nú alveg um 10 dagar þar til að þú kemur heim og við viljum sjá blogg á hverjum degi sem sagt 10 færslur.

    Koma svo Björnson……….

  3. Gummi kóngur segir:

    Það verður gott að fá þig heim kappi! en njóttu ferðarinnar eins og hægt er þangað til ;)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.