Stutt fréttatilkynning

Á sunnudagskvöldið kom ég til Guaranda frá Macas, eftir tveggja daga frumskógardvöl hjá Shuar-indíánum. Um kvöldið fann ég skyndilega fyrir miklum verk í kviðarholinu ásamt ógleði. Alla nóttina vaknaði ég reglulega til að spretta á klósettið, kúgast og emja af sársauka sem linaðist við athöfnina, um sinn. Um morguninn, þar sem ástandið hafði ekkert skánað, ákvað Sheyla „systir mín“, sem er læknir, að best væri að ég færi á sjúkrahúsið þar sem hún vinnur til nánari skoðunar.

Á sjúkrahúsinu lá ég á hörðum bekk allan daginn með vökva í æð og fékk verkjalyf og önnur lyf til að koma mér á réttan kjöl. Sá kokteill hafði ekki tilætlaða verkun og ég var farinn að vera dálítið órólegur. Um fjögurleytið á mánudaginn var ég svo sendur í ómskoðun og röntgenmyndatöku niðri í bæ þar ljóst var að allt var hreint ekki með feldu. Þarmarnir virtust lamaðir og bólgnir; það var eins og þeir höfðu gefist upp og hætt að starfa. Blóðprufurnar fra sjúkrahúsinu höfðu sýnt aukinn fjölda hvítra blóðkorna sem benti til að ónæmiskerfið væri að berjast við einhvers konar sýkingu. Auk stöðugs sársauka hafði ég ekkert borðað síðan kvöldið áður og ekki bætti hungrið ástandið.

Klukkan sex var ég kominn á Sjúkrahús heilags Patreks í Guaranda og skurðlæknirinn, sem er ágætis vinur Sheylu og hún hafði hringt í sérstaklega til að líta á vesælinginn, þuklaði mig og potaði á ýmsan hátt. Eftir að hafa hummað og u-hummað dálítið með sjálfum sér með myndirnar og blóðprufurnar í höndunum lýsti hann því yfir að þetta væri að öllum líkindum botnlangabólga sem best væri að meðhöndla með skurðaðgerð, og það tafarlaust. Ég jánkaði því og ákveðið var að skera mig upp að klukkutíma liðnum.

Fjölskyldan beið með mér og ég var sendur í sturtu til að vera nú hreinn og sætur fyrir skurðlæknana. Sheyla var þá líka komin og fullvissaði mig um að allt færi vel fram, þar sem hún ætlaði að aðstoða við aðgerðina. Ég hafði aldrei farið í aðgerð áður, en ég fann aldrei til kvíða eða óöryggis; ég fann að ég var í góðum höndum.

Það var gott að sofna á skurðarborðinu og finna verkun glaðloftsins og svefnlyfjanna færa mann í ljúfan svefn. Ég var skorinn upp og botnlanginn fjarlægður á mánudagskvöldi, var tvo daga á sjúkrahúsinu og fékk að fara heim í gær, á miðvikudegi.

Ég er ennþá með verki og má ekki reyna á mig. Hlátur og hnerri er versta pynding þegar magavöðvarnir hafa verið bútaðir í sundur. Þau gera grín að mér að ég gangi eins og gamall karl, boginn í baki hægum skrefum í náttsloppi og inniskóm. Það er ekki fjarri lagi því mér finnst ég hafi elst um sextíu ár á einu bretti. En ég fer örugglega að lagast og yngjast á næstu dögum.

Verst af öllu er að núna er Carnaval, kjötkveðjuhátíðin, í fullum snúningi og meðan allir eru út að skemmta sér ligg ég upp í rúmi og horfi á Discovery Channel.

- Guaranda, 11. feb

6 svör to “Stutt fréttatilkynning”

  1. Eyþór segir:

    Kommentakerfið er aftur komið í gang. Ég bið þá afsökunar sem hafa brunnið í skinninu að skella inn athugasemd.

  2. Didda og Heiðar segir:

    Einmitt er alltaf að gá.

  3. mamma segir:

    Átti að skila góðri batakveðju frá Petru ömmu þinni og Doddu ömmu líka. Kartrín Mey varð 4 ára í dag og Linda Líf hélt upp á 1 árs afmælið sitt svo ég brunaði á milli afmæla. Brósi verður sextugur á morgun og þá verður enn ein veislan. Annars er hér eiginlega bara vor. Hlökkum til að heyra meira frá þér, strákur. Stjánarnir biðja að heilsa.

  4. Tómas segir:

    Stigamenn í fyrsta sæti þegar tímabilið er hálfnað. Fc Eddi73 er með jafnmörg stig og jafnmikið af mörkum í plús en Stigamenn hafa skorað fleiri. Búið að selja Mads Hassel, gamla brýnið Peter Robertsson, Dairis Sildedzis og Markus Perämäki. Á móti hafa varnarmennirnir Guðmundur Tindsson og Gissur Friðþjófsson komið sterkir inn í liðið. Mikið að gerast!

  5. Bjarki segir:

    Í guðanna bænum ekki vera að tala um hattrick hér ;)
    láttu þér batna fljótt eybó :)

  6. Gunna segir:

    Sæll minn kæri! Þvílíkar fréttir af veikindum og spítalavist. Ég vona og bið að þú sért að ná þér. Krakkarnir skila voða góðri kveðju til Eylóls! Javier er mjög umhugað um velferð þína á sjúkrahúsi í Ekvador, en hvað getur maður gert, veikindi gera víst ekki boð á undan sér. Heilsist þér sem best, Gunna Frænka í Florida

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.