Ég er núna staddur í Cuenca, eins og titillinn gefur til kynna, og í dag fór ég til Ingapirca sem eru merkustu rústir frá tímum inkanna hér í Ekvador og á morgun, fimmtudaginn 27. janúar, fer ég í dagsferð í El Cajas þjóðgarðinn í nágrenni Cuenca. Ég vonast til að geta skrifað rækilega færslu fyrir föstudaginn en ég er búinn að uppfæra kortið svo þið getið rennt augunum yfir það þangað til.
Vegna mikilla anna og netleysis hefur myndaupphalning gengið illa en það gleður mig að tilkynna að nú hef ég bætt tveimur albúmum í myndasafnið, myndum frá Otavalo og nágrenni og Cuenca, þar sem einhverjir ættu að geta svalað myndaþorsta sínum. Svo hef ég uppfært Quito-albúmið og bætt við myndum frá m.a. Guayasamín-safninu.
Með kveðju,
Eyþór.